Dagmál: Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis þegar neyðarlögin voru sett

Ég fór í Dagmál hjá Andrési Magnússyni og ræddi um nýtt hlutverk og erindi Framsóknarflokksins. Flokkurinn er að leggja skýrari línur í efnahags- og utanríkismálum og hefur það að markmiði að setja heimili landsins aftur á dagskrá.

Andrés spurði mig jafnframt um samstarfið við Davíð Oddsson en ég starfaði með honum í Seðlabanka Íslands á einu róstursamasta skeiði í íslensku hagkerfi. Hér er brot úr viðtalinu þar sem ég segi frá helginni örlagaríku 4.-5. október 2008 þegar neyðarlögin voru í undirbúningi.

Previous
Previous

Dagmál: Fram­sókn og framtíð, Plan B og Davíð

Next
Next

Reykjavík síðdegis: Segir brýnt að fara í tafarlausar aðgerðir til að ná tökum á verðbólgu