Hver er Lilja?

Lilja Dögg Alfreðsdóttir er fædd í Reykjavík 4. október 1973. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólann í Reykjavík, BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóa Íslands árið 1998 og meistaraprófi í alþjóðahagfræði frá Columbia University í New York árið 2001. Lilja er gift Magnúsi Óskari Hafsteinssyni hagfræðingi, þau búa í Fossvoginum í Reykjavík og eiga tvö börn, Eystein Alfreð og Signýju Steinþóru.

Lilja starfaði sem aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu alþjóðasamskipta og markaðsmála hjá Seðlabanka Íslands 2001-2010, sem ráðgjafi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) í Washington D.C frá 2010-201 3 og sem aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra og alþjóðasamskipta 2013-2014. Hún var fengin sem verkefnastjóri í forsætisráðuneytið 2014-2015 þar sem hún vann að afnámi gjaldeyrishafta og fleiri verkefnum.

Lilja var skipuð utanríkisráðherra árið 2016 fyrir hönd Framsóknarflokksins. Hún var kjörin varaformaður Framsóknar og á Alþingi sama ár sem oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Lilja sat 3 kjörtímabil á Alþingi frá 2016-2024. Þá var hún varaformaður menntaráðs Reykjavíkurborgar 2006–2010.

Hún gegndi embætti utanríkisráðherra frá 2016-2017, mennta- og menningarmálaráðherra frá 2017 til 2021 og aftur frá 2021 til 2024 sem ráðherra menningar-, viðskipta- og ferðamála.

Lilja var kjörin formaður Framsóknarflokksins á flokksþingi 15. febrúar 2026, fyrsta konan í sögu flokksins.

Stefnumótun í breiðu samráði

Aðgerðir sem skila árangri

Menningar- og viðskiptaráðherra 2021-2024

Mennta- og menningarmálaráðherra 2018-2021