Ferðamálastefna til 2030 og aðgerðaáætlun
Í júní 2024 samþykkti Alþingi tillögu til þingsályktunar, sem ferðamálaráðherra lagði fram, um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Ferðamálastefnan, og aðgerðaáætlun hennar, hefur nú verið gerð aðgengileg með sérstakri útgáfu sem kynnt var á fjölmennu útgáfuhófi hjá Samtökum ferðaþjónustunnar síðastliðinn föstudag.
Stefnan og aðgerðaáætlun var unnin í náinni samvinnu við atvinnulíf, grasrót og fagfólk úr ólíkum geirum en í kringum 100 einstaklingar höfðu beina aðkomu að gerð þingsályktunartillögu sem stefnan byggir á og ætla má að yfir þúsund haghafar hafi sett mark sitt á hana í samráðsferlinu.
„Það skiptir miklu máli að vel takist til að móta ferðaþjónustunni hagfelld skilyrði til þess að vaxa og dafna með sjálfbærum hætti svo greinin geti áfram skapað aukin verðmæti og lífsgæði fyrir okkar samfélag. Nú er búið að varða margar lykilaðgerðir í nýrri ferðamálastefnu og við erum þegar byrjuð að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd. Ég vil þakka öllum þeim sem komu að þessari vönduðu og yfirgripsmiklu vinnu innilega fyrir frábært samstarf,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.
Með aðgerðaáætlun, sem er hluti ferðamálastefnu, verður framtíðarsýn, áherslum og markmiðum ferðamálastefnu fylgt eftir til 2030 með skilgreindum, kostnaðarmetnum og tímasettum aðgerðum. Alls er þar um 43 aðgerðir að ræða sem skiptast niður á lykilstoðir ferðaþjónustu.
Nánara yfirlit yfir þessar 43 aðgerðir í aðgerðaáætlun, og stöðu þeirra, er að finna á heimasíðu Ferðamálastofu og á síðunni www.ferdamalastefna.is.