Fréttir, greinar og pistlar
Þess vegna talar ChatGPT íslensku
Ísland hefur staðið sterkt á ýmsum sviðum tækniþróunar og þar hefur þróun í máltækni staðið upp úr. Sá árangur sem við höfum náð fyrir tungumálið okkar í heimi tækninnar hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana og veitir Ísland öðrum fámennum málsvæðum nú innblástur.