Fréttir, greinar og pistlar

AGS hvetur til breytinga í Evrópu
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

AGS hvetur til breytinga í Evrópu

Heildarskuldir Evrópuríkja árið 2040 gætu að meðaltali náð 130% af landsframleiðslu, allt yfir 90% skuldir er talið ósjálfbært til lengri tíma. Til að snúa þessari þróun við þyrftu ýmis ríki að hagræða í rekstri sínum um 1% af landsframleiðslu í fimm ár! Til samanburðar við Ísland þá væru þetta rúmir 50 ma.kr. eða um 3% af heildarútgjöldum ríkissjóðsins. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Evrópu og líka Ísland. Utanríkisviðskipti við Evrópu skipta okkur miklu máli og að innri markaðurinn sé sterkur. Fram kemur í erindi Kammers að ef ekkert verði gert séu skuldir sumra ríkja ósjálfbærar og að velferðarkerfi margra ríkja sé í hættu. Lausnin að hans mati liggur ekki aðeins í hagræðingu hjá hinu opinbera heldur fremur í að efla hagvöxt.

Read More
Sam­vinna er leiðin til hag­sældar
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Sam­vinna er leiðin til hag­sældar

Grunnstef samvinnuhugsjónarinnar er í eðli sínu mjög einfalt; í stað þess að vinna í sitt hvoru horninu, nýta menn sameiginlega slagkraft sinn til að ná lengra – og leggja sig fram við það. Þetta hugarfar hefur sennilega aldrei verið mikilvægara en nú, í þeim krefjandi samtíma í alþjóðamálum sem við lifum. Til þess að stýra landi þarf raunverulega samvinnu. Í þeim anda hefur Framsókn stýrt sínum ráðuneytum í ríkisstjórn Íslands og lagt sitt af mörkum til þess að brúa bil milli ólíkra sjónarmiða.

Read More
Ís­lensk ferða­þjónusta til fram­tíðar: Næstu skref
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Ís­lensk ferða­þjónusta til fram­tíðar: Næstu skref

Ferðaþjónustan hefur á tiltölulega skömmum tíma orðið einn af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar, með getu til þess að skapa miklar gjaldeyristekjur á skömmum tíma. Greinin veitir rúmlega 30 þúsund manns atvinnu og skilar meira en 155 milljörðum í skatta til samfélagsins árlega. Það hefur skipt okkar litla opna hagkerfi gríðarlegu máli.

Read More
Vísir: Af vængjum fram
Viðtöl Jóhanna Hreiðarsdóttir Viðtöl Jóhanna Hreiðarsdóttir

Vísir: Af vængjum fram

Ég mætti í af vængjum fram, ræddi fylgið og fer með magnaðar eftirhermur af eldri leiðtogum. Ég svaraði líka hraðaspurningum, rifjaði upp árin í Kóreu og fór í störukeppni.

Read More
Þess vegna talar ChatGPT ís­lensku
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Þess vegna talar ChatGPT ís­lensku

Ísland hefur staðið sterkt á ýmsum sviðum tækniþróunar og þar hefur þróun í máltækni staðið upp úr. Sá árangur sem við höfum náð fyrir tungumálið okkar í heimi tækninnar hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana og veitir Ísland öðrum fámennum málsvæðum nú innblástur.

Read More