Fréttir, greinar og pistlar

Hagkerfið stopp?
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Hagkerfið stopp?

Brýnasta verkefnið núna er að vinna að stöðugleika í efnahagsstjórninni og ná tökum á verðbólguvæntingum. Til þess þarf að halda aftur af gjaldahækkunum hins opinbera og ríkisstjórnin þarf að leiða með góðu fordæmi. Allir hagaðilar verða að koma að þessu borði og vinna gegn þrálátri verðbólgu. Með 5,2% verðbólgu getur ríkið ekki aukið eftirspurn með útgjaldavexti án þess að ýta undir verðlag og vexti.

Read More
Næst á dagskrá
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Næst á dagskrá

Framsóknarflokkurinn hefur átt góða samleið með íslensku þjóðinni í gegnum tíðina og tekið virkan þátt í að koma Íslandi í fremstu röð þjóða. Tímamót eru fram undan hjá Framsókn, þar sem ný forysta verður kosin – þar sem ég hef boðið mig fram til formennsku.

Read More
Framboð til formanns Framsóknarflokksins
Færslur Jóhanna Hreiðarsdóttir Færslur Jóhanna Hreiðarsdóttir

Framboð til formanns Framsóknarflokksins

Nú eru tímamót. Ég tel að flokkurinn þurfi að endurnýja erindi sitt gagnvart þjóðinni. Eftir hvatningu frá félögum mínum í Framsókn, vítt og breytt um landið, hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns Framsóknarflokksins. Ég brenn fyrir hagsmunum íslensks samfélags og tel að reynsla mín og þekking geti nýst vel í þeim verkefnum sem bíða Framsóknar, innan sem utan þings. Samvinna er kjarninn í hugmyndafræði Framsóknar og verður hún leiðarljós í störfum mínum verði ég kjörin formaður. Framsókn er fjöldahreyfing sem býr yfir miklum mannauði um allt land, fólk úr öllum áttum sem vill leggja sitt af mörkum til að gera samfélagið betra. Í þessum öfluga hópi fólks liggur lykillinn að uppbyggingu Framsóknarflokksins, sem ég vil gjarnan leiða.

Read More
Mikilvægasta auðlindin er sjálfstæði þjóðarinnar
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Mikilvægasta auðlindin er sjálfstæði þjóðarinnar

Í umróti alþjóðastjórnmálanna er nauðsynlegt að rifja upp söguna og muna hvað hefur þjónað okkur vel. Í mínum huga er sjálfstæði þjóðarinnar ein mikilvægasta auðlind okkar. Því eigum við ekki að gefa því undir fótinn að ganga í Evrópusambandið né heldur vera undir öðru erlendu valdi.

Read More
Hið ósökkvandi flugmóðurskip
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Hið ósökkvandi flugmóðurskip

Íslandi hefur verið lýst sem ósökkvandi flugmóðurskipi í Norður-Atlantshafinu. Mikilvægi Íslands út frá öryggis- og varnarmálum er óumdeilt enda lagði Churchill mikið á sig til að halda siglingaleiðinni yfir Atlantshafið öruggri. Sú sögulega staðreynd að Ísland var staðsett þar sem lýðræði og markaðshagkerfi hafa verið ráðandi skýrir að mörgu leyti þá framþróun landsins frá sjálfstæði. Lýðræðishefðin á Íslandi á sér þó miklu lengri sögu, eins og þekkt er.

Read More
Efnahagsáskoranir 2026: Verðbólga, hagvöxtur og atvinna
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Efnahagsáskoranir 2026: Verðbólga, hagvöxtur og atvinna

Fyrsta stóra áskorunin 2026 er að ná verðbólgu niður og fara í raunverulegar aðgerðir sem ná tökum á verðbólguvæntingum. Ríkisstjórnin hefur ekki lagst á árarnar með Seðlabankanum og það sést best á fjárlagafrumvarpinu 2026. Þar er bætt við útgjöldum upp á 143 ma.kr.! Heildarútgjöld aukast um 5,4% á föstu verðlagi. Ljóst er að þau koma ekki til með að slá á verðbólgu. Gjöld og þjónusta ríkisins er einnig að hækka um 3,7%. Skilaboðin í þessum fjárlögum eru einföld. Ríkisstjórnin hefur ekki áhyggjur af verðbólguþróun. Hér þarf að gera betur með meiri aga og framsýni. Ríkisfjármál verða að styðja við aðhald peningastefnunnar með skýrri forgangsröðun, minni óvissu og ráðstöfunum sem draga úr þrýstingi í stað þess að kynda undir verðbólgunni, annars lengist hávaxtatímabilið og kostnaðurinn færist á heimilin.

Read More
Jól í orðum og tónum
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Jól í orðum og tónum

Allt þetta á sér þó sameiginlega rót: tungumálið. Íslenskan er ekki aðeins miðill heldur uppspretta sköpunar; hún geymir blæbrigði og hugtök sem gera okkur kleift að semja, syngja, leika og ræða heiminn á okkar eigin forsendum. Höldum áfram að hlúa að henni í daglegu lífi okkar, í skólum og í hinum stafræna heimi. Höfum það ávallt hugfast að „á íslensku má alltaf finna svar“, eins og fram kemur í ljóði Þórarins Eldjárns. Hátíðin sem nú er að ganga í garð er allra hugljúfasti tími ársins vegna þeirra orða og tóna sem við njótum.

Read More
Sundlaugamenning fær æðstu alþjóðlegu viðurkenningu
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Sundlaugamenning fær æðstu alþjóðlegu viðurkenningu

Frá náttúrulaugum landnámsmanna til nútímasundlauga hefur heita vatnið verið rauði þráðurinn í íslenskri menningu. Fortíðin sýnir okkur hvernig vatnið skapaði tengsl, byggði samfélög og varð vettvangur samskipta. Laugarnar eru í dag einn stærsti vettvangur samskipta þjóðarinnar, þar sem kynslóðir koma saman dag hvern. Með skráningu UNESCO er ekki aðeins verið að heiðra þessa sögu, heldur líka verið að vernda hana til framtíðar. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu verkefni og óska okkur til hamingju með þessa viðurkenningu!

Read More
Veikar forsendur fjárlagafrumvarpsins
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Veikar forsendur fjárlagafrumvarpsins

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 virðist vera að lenda í sömu vandræðunum og hús mannsins sem reist var á sandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands er gert ráð fyrir mun minni hagvexti í ár eða 0,9% í stað 2,3%. Við blasir hagkerfi þar sem umsvif dragast saman og viðvarandi slaki hefur tekið við af tímabundinni kólnun. Fyrri forsendur um hagvöxt eru brostnar.

Read More
AGS hvetur til breytinga í Evrópu
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

AGS hvetur til breytinga í Evrópu

Heildarskuldir Evrópuríkja árið 2040 gætu að meðaltali náð 130% af landsframleiðslu, allt yfir 90% skuldir er talið ósjálfbært til lengri tíma. Til að snúa þessari þróun við þyrftu ýmis ríki að hagræða í rekstri sínum um 1% af landsframleiðslu í fimm ár! Til samanburðar við Ísland þá væru þetta rúmir 50 ma.kr. eða um 3% af heildarútgjöldum ríkissjóðsins. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Evrópu og líka Ísland. Utanríkisviðskipti við Evrópu skipta okkur miklu máli og að innri markaðurinn sé sterkur. Fram kemur í erindi Kammers að ef ekkert verði gert séu skuldir sumra ríkja ósjálfbærar og að velferðarkerfi margra ríkja sé í hættu. Lausnin að hans mati liggur ekki aðeins í hagræðingu hjá hinu opinbera heldur fremur í að efla hagvöxt.

Read More
Sam­vinna er leiðin til hag­sældar
Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir Greinar og pistlar Jóhanna Hreiðarsdóttir

Sam­vinna er leiðin til hag­sældar

Grunnstef samvinnuhugsjónarinnar er í eðli sínu mjög einfalt; í stað þess að vinna í sitt hvoru horninu, nýta menn sameiginlega slagkraft sinn til að ná lengra – og leggja sig fram við það. Þetta hugarfar hefur sennilega aldrei verið mikilvægara en nú, í þeim krefjandi samtíma í alþjóðamálum sem við lifum. Til þess að stýra landi þarf raunverulega samvinnu. Í þeim anda hefur Framsókn stýrt sínum ráðuneytum í ríkisstjórn Íslands og lagt sitt af mörkum til þess að brúa bil milli ólíkra sjónarmiða.

Read More