Fréttir, greinar og pistlar
Sprengisandur: Nýr formaður Framsóknar gagnrýnir efnahagsstefnu ríkisstjórnar harkalega
Lilja svarar því hvert hún vill stefna með flokkinn og hvað hún ætlar sér sem formaður.
Farsæld Íslands
Framtíðin á Íslandi er bjartari, þegar við ráðum okkar málum sjálf. Það sem mestu skiptir fyrir framtíðina er hvort ungt fólk sjái fyrir sér að stofna fjölskyldu á Íslandi. Það er orðið sífellt erfiðara að eignast húsnæði. Það þarf nýjan Lífskjarasáttmála fyrir ungt fólk, sem felur í sér róttækar lausnir sem auka framboð, stytta boðleiðir í kerfinu og gera fólki kleift að komast inn á húsnæðismarkaðinn á hagkvæmari hátt en áður. Allt snýst þetta um að hafa trú á framtíðinni og að ungt fólk finni að það skipti máli og geti mótað landið sem það mun erfa. Með samvinnu að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir.
Bítið á Bylgjunni: 90 daga áætlun
Ég spjallaði við Heimi og Lilju í Bítinu á Bylgjunni í morgun og ræddi um nýja forystu Framsóknar, skýrari sýn og áherslur mínar næstu 90 daga.
Kærar þakkir fyrir traustið!
Ég er auðmjúk og þakklát fyrir það mikla traust sem grasrót Framsóknarflokksins hefur sýnt mér á 38. flokksþingi flokksins. Einnig vil ég þakka Ingibjörgu Isaksen fyrir snarpa og öfluga kosningabaráttu sem hefur verið skemmtileg - og flokknum nauðsynleg. Sem formaður Framsóknarflokksins heiti ég að leggja mig alla fram við að vinna samvinnuhugsjóninni brautargengi með þeim mikla mannauði sem er í flokknum um allt land; fólki úr ólíkum áttum sem brennur fyrir það að gera Ísland að betra landi en það var í gær. Takk!
Samferða þjóðinni til farsældar
Framsóknarflokkurinn hefur í heila öld verið einn burðarása stjórnmálanna. Verkefnin breytast, en kjarni málsins stendur: að sameina ólík sjónarmið, byggja á raunsæi og vinna að hagsæld almennings – samferða þjóðinni, ár eftir ár. Með skýru erindi, öflugu málefnastarfi og samvinnu á breiðum grunni mun flokkurinn ná vopnum sínum á ný. Þannig mun hann halda áfram að leggja grunninn að áframhaldandi lífskjarasókn Íslands til framtíðar, líkt og hann hefur gert allar götur síðan 1916.
Pallborðið á Vísi: Kappræður formannsframbjóðenda
Við Ingibjörg Isaksen mættumst í Pallborðinu á Vísi.
Landbúnaðurinn okkar
Þegar áföll dynja yfir skiptir máli að við getum staðið á eigin fótum að minnsta kosti að hluta. Þess vegna er hugmyndin um matvælalandið Ísland liður í sjálfstæði okkar og öryggi.
Silfrið: Næsti formaður Framsóknar
Við Ingibjörg Isaksen ræddum um áherslur okkar í framboði til formennsku í Framsóknarflokknum.
Tækifæri Íslands
Það er eðlilegt að umræða dagsins einkennist af áhyggjum og óvissu. En það er grundvallaratriði að við sjáum tækifærin sem blasa við og veljum bjartsýni sem leiðarstef. Bjartsýni felst ekki í því að gera lítið úr vandamálum eða líta fram hjá staðreyndum, heldur í því að trúa að hægt sé að bregðast við áskorunum af skynsemi. Ef við missum trúna á eigin getu dregur úr möguleikum okkar til að bregðast við.
Hagkerfið stopp?
Brýnasta verkefnið núna er að vinna að stöðugleika í efnahagsstjórninni og ná tökum á verðbólguvæntingum. Til þess þarf að halda aftur af gjaldahækkunum hins opinbera og ríkisstjórnin þarf að leiða með góðu fordæmi. Allir hagaðilar verða að koma að þessu borði og vinna gegn þrálátri verðbólgu. Með 5,2% verðbólgu getur ríkið ekki aukið eftirspurn með útgjaldavexti án þess að ýta undir verðlag og vexti.
Næst á dagskrá
Framsóknarflokkurinn hefur átt góða samleið með íslensku þjóðinni í gegnum tíðina og tekið virkan þátt í að koma Íslandi í fremstu röð þjóða. Tímamót eru fram undan hjá Framsókn, þar sem ný forysta verður kosin – þar sem ég hef boðið mig fram til formennsku.
Framboð til formanns Framsóknarflokksins
Nú eru tímamót. Ég tel að flokkurinn þurfi að endurnýja erindi sitt gagnvart þjóðinni. Eftir hvatningu frá félögum mínum í Framsókn, vítt og breytt um landið, hef ég ákveðið að bjóða mig fram til formanns Framsóknarflokksins. Ég brenn fyrir hagsmunum íslensks samfélags og tel að reynsla mín og þekking geti nýst vel í þeim verkefnum sem bíða Framsóknar, innan sem utan þings. Samvinna er kjarninn í hugmyndafræði Framsóknar og verður hún leiðarljós í störfum mínum verði ég kjörin formaður. Framsókn er fjöldahreyfing sem býr yfir miklum mannauði um allt land, fólk úr öllum áttum sem vill leggja sitt af mörkum til að gera samfélagið betra. Í þessum öfluga hópi fólks liggur lykillinn að uppbyggingu Framsóknarflokksins, sem ég vil gjarnan leiða.
RÚV: Lilja Alfreðsdóttir býður sig fram til formanns Framsóknar
„Við höfum sýnt það í gegnum tíðina að við höfum getað tekist á við stærstu áskoranir þjóðarinnar og við erum sannarlega tilbúin til þess að leiða þjóðina inn í nýja tíma. Til þess að geta gert það þurfum við að byggja upp flokkinn og ég er mætt á skófluna,“
Mikilvægasta auðlindin er sjálfstæði þjóðarinnar
Í umróti alþjóðastjórnmálanna er nauðsynlegt að rifja upp söguna og muna hvað hefur þjónað okkur vel. Í mínum huga er sjálfstæði þjóðarinnar ein mikilvægasta auðlind okkar. Því eigum við ekki að gefa því undir fótinn að ganga í Evrópusambandið né heldur vera undir öðru erlendu valdi.
Hið ósökkvandi flugmóðurskip
Íslandi hefur verið lýst sem ósökkvandi flugmóðurskipi í Norður-Atlantshafinu. Mikilvægi Íslands út frá öryggis- og varnarmálum er óumdeilt enda lagði Churchill mikið á sig til að halda siglingaleiðinni yfir Atlantshafið öruggri. Sú sögulega staðreynd að Ísland var staðsett þar sem lýðræði og markaðshagkerfi hafa verið ráðandi skýrir að mörgu leyti þá framþróun landsins frá sjálfstæði. Lýðræðishefðin á Íslandi á sér þó miklu lengri sögu, eins og þekkt er.
Efnahagsáskoranir 2026: Verðbólga, hagvöxtur og atvinna
Fyrsta stóra áskorunin 2026 er að ná verðbólgu niður og fara í raunverulegar aðgerðir sem ná tökum á verðbólguvæntingum. Ríkisstjórnin hefur ekki lagst á árarnar með Seðlabankanum og það sést best á fjárlagafrumvarpinu 2026. Þar er bætt við útgjöldum upp á 143 ma.kr.! Heildarútgjöld aukast um 5,4% á föstu verðlagi. Ljóst er að þau koma ekki til með að slá á verðbólgu. Gjöld og þjónusta ríkisins er einnig að hækka um 3,7%. Skilaboðin í þessum fjárlögum eru einföld. Ríkisstjórnin hefur ekki áhyggjur af verðbólguþróun. Hér þarf að gera betur með meiri aga og framsýni. Ríkisfjármál verða að styðja við aðhald peningastefnunnar með skýrri forgangsröðun, minni óvissu og ráðstöfunum sem draga úr þrýstingi í stað þess að kynda undir verðbólgunni, annars lengist hávaxtatímabilið og kostnaðurinn færist á heimilin.
Jól í orðum og tónum
Allt þetta á sér þó sameiginlega rót: tungumálið. Íslenskan er ekki aðeins miðill heldur uppspretta sköpunar; hún geymir blæbrigði og hugtök sem gera okkur kleift að semja, syngja, leika og ræða heiminn á okkar eigin forsendum. Höldum áfram að hlúa að henni í daglegu lífi okkar, í skólum og í hinum stafræna heimi. Höfum það ávallt hugfast að „á íslensku má alltaf finna svar“, eins og fram kemur í ljóði Þórarins Eldjárns. Hátíðin sem nú er að ganga í garð er allra hugljúfasti tími ársins vegna þeirra orða og tóna sem við njótum.
Sundlaugamenning fær æðstu alþjóðlegu viðurkenningu
Frá náttúrulaugum landnámsmanna til nútímasundlauga hefur heita vatnið verið rauði þráðurinn í íslenskri menningu. Fortíðin sýnir okkur hvernig vatnið skapaði tengsl, byggði samfélög og varð vettvangur samskipta. Laugarnar eru í dag einn stærsti vettvangur samskipta þjóðarinnar, þar sem kynslóðir koma saman dag hvern. Með skráningu UNESCO er ekki aðeins verið að heiðra þessa sögu, heldur líka verið að vernda hana til framtíðar. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu verkefni og óska okkur til hamingju með þessa viðurkenningu!
Veikar forsendur fjárlagafrumvarpsins
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 virðist vera að lenda í sömu vandræðunum og hús mannsins sem reist var á sandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands er gert ráð fyrir mun minni hagvexti í ár eða 0,9% í stað 2,3%. Við blasir hagkerfi þar sem umsvif dragast saman og viðvarandi slaki hefur tekið við af tímabundinni kólnun. Fyrri forsendur um hagvöxt eru brostnar.